Tuesday, December 16, 2014

ANDKRISTNIHÁTÍÐ


Vánagandr og Andfari kynna

Andkristnihátíð 2014 
21. Desember á Gauknum, Tryggvagötu

21. desember verður Andkristni haldin hátíðleg á Gamla Gauknum. Þar munu hljómsveitirnar Svartidauði, Sinmara, Carpe Noctem, Misþyrming, Abominor, Mannvirki, Naðra og Úrhrak koma fram og særa fram djöfla og aðra illa ára með sínum drungalegu tónum.

Andkristnihátíð er langlífasta þungarokkshátíð Íslands en hún var fyrst haldin árið 2000 sem óbeint andsvar við Kristnihátíð sem haldin var á Þingvöllum það sama ár.


No comments:

Post a Comment